Siglir Lilja Mósesdóttir undir fölsku flaggi?

Lilja Mósesdóttir þingmaður hefur kynnt nýjan stjórnmálaflokk,sem á að heita Samstaða og hefur pantað listabókstafinn C en það var bókstafur Sósialistaflokksins. Lilja segir,að nýi flokkurinn  eigi hvorki að vera til hægri né vinstri og ekki heldur miðjuboð. En þegar stefnuskráin er skoðuð kemur í ljós,að þetta er gamaldags vinstri flokkur eins og listabókstafurinn gefur raunar til kynna. Ljóst er því að Lilja Mósesdóttir siglir undir fölsku flaggi.Flokkurinn vill norrænt velferðarkerfi,láta skattkerfið stuðla að jöfnuði,veita ríkinu forkaupsrétt á landi og  berst gegn aðild að Evrópusambandinu.Allt eru þetta mál,sem VG berst fyrir.Lilja gat hins vegar ekki verið í VG,þar eð henni fannst stefna þess flokks ekki nógu langt til vinstri.Hún hlýtur því að ætla að láta nýja flokkinn,Samstöðu vera lengra til vinstri en VG.

 

Björgvin Guðmundsson 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Satt best að segja skil eg ekki Lilju. Hún ákvað að stökkva fyrir borð ásamt tveim öðrum þingmönnum VG. Það hefur reynst hafa orðið vatn á myllu íhaldsins.

Þessi hugmyndifræðigrunnur hennar er mjög loðinn og fáorður.

Guðjón Sigþór Jensson, 9.2.2012 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband