Fimmtudagur, 29. nóvember 2012
Eldri borgarar skora á alþingi
Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík samþykkti á fundi sínum 26.nóvember sl. að skora á alþingi að afturkalla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 1.júlí 2009.Ástæðan fyrir því, að kjaranefndin skorar á alþingi er sú,að ekkert bólar á því að ríkisstjórnin ætli að afturkalla þessa kjaraskerðingu, þó því hafi verið lofað,þegar lögin um þessa skerðingu voru samþykkt.Taki ríkisstjórnin ekki rögg á sig og afturkalli kjaraskerðinguna verður alþingi að taka í taumara og gera það,sem ríkisstjórnin lofaði að gera.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.