Sunnudagur, 3. nóvember 2013
Mikil kaupmáttarskerðing öryrkja og aldraðra í kreppunni
Björgvin Guðmundsson skrifar grein á heimasíðu sína um kjaramál öryrkja og aldraðra. Greinin heitir: Mikil kaupmáttarskerðing öryrkja og aldraðra í kreppunni.Þar segir svo:
Öryrkjar hafa orðið fyrir mikilli kaupmáttarskerðingu á krepputímanum, samkvæmt athugun, sem Talnakönnun gerði fyrir Öryrkjabandalag Íslands.Samkvæmt könnuninni hækkaði launavísitalan um 23,5% á tímabilinu 2009-2013 og neysluverð hækkaði um 20,5% á sama tímabili en meðaltekjur öryrkja ( allar tekjur,fjármagnstekjur meðtaldar) hækkuðu aðeins um 4,1% á sama tímabili( tekjur eftir skatta).Verðbólga var á tímabilinu 20,5%.Kaupmáttarskerðing er því mjög mikil.
Talnakönnun athugaði einnig breytingu bóta,verðlags og launa á tímabilinu 2008-2013. Þá kom eftirfarandi í ljós:Lágmarkslaun hækkuðu á þessu tímabili um 54,3% en lífeyrir einhleypra öryrkja hækkaði á sama tímabili aðeins um 29%. Lífeyrir sambúðarfólks hækkaði um 29,7%.
Kjaraskerðing aldraðra einnig mjög mikil
Þessar tölur eru mjög í samræmi við þá útreikninga,sem kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík hefur gert.Við höfum að vísu einungis reiknað út breytingar á lágmarkslaunum og breytingu tryggingabóta aldraðra á tímabilinu 2009-2013.En samkvæmt okkar útreikningum hafa lágmarkslaun hækkað um 40% á þessu tímabili en lífeyrir einhleypra eldri borgara,sem eingöngu hafa tekjur frá TR, hefur hækkað um 17% á sama tímabili.Kjargliðnunin er því mjög mikil hvort sem miðað er við tímabilið 2008-2013 eða tímabilið 2009-2013.Laun hafa hækkað mikið meira en bætur aldraðra og öryrkja á þessum tímabilum.Báðir stjórnarflokkarnir lýstu því yfir fyrir þingkosningar sl. vor, að leiðrétta ætti þessa kjaragliðnun og það ætti að leiðrétta hana strax.
Stjórnarflokkarnir vildu leiðrétta þetta nú þegar
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 var eftirfarandi samþykkt: Ellilífeyrir sé leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir,sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009. Hér er engin tæpitunga töluð.Það á að leiðrétta kjaragliðnunina strax.Nú eru hæg heimatökin hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu efni, þar eð flokkurinn er með fjármálaráðherrann,Bjarna Benediktsson,sem jafnframt er formaður Sjálfstæðisflokksins.Hann getur haft forgöngu um það, að staðið verði við samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksinds og kjaragliðnunin leiðrétt strax á haustþinginu.Á flokksþingi Framsóknarflokksins var eftirfarandi samþykkt fyrir kosningar: Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjaragliðnunar) á krepputímanum.
Fyrstu skref ríkisstjórnarinnar máttleysisleg
Því miður voru fyrstu skref ríkisstjórnarinnar í því efni að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja ansi máttleysisleg.Ríkisstjórnin ákvað að leiðrétta aðeins lítillega kjör þeirra lífeyrisþega,sem best voru settir en skildi hina eftir,sem höfðu verst kjörin.Þeir lífeyrisþegar,sem misstu grunnlífeyrinn 2009, fengu hann aftur.Og þeir sem sættu skerðingu á frítekjumarki 2009 vegna atvinnutekna ( lækkun úr 110 þús. á mán. í 40 þús) fengu leiðréttingu á frítekjumarkinu.Þessir hópar voru sæmilega vel settir.Þeir,sem misstu grunnlífeyrinn og fengu hann aftur á sumarþinginu, eru með nokkuð góðar lífeyrissjóðstekjur.Og þeir,sem eru á vinnumarkaðnum,fá aukatekjur af atvinnutekjum og eru því betur settir en þeir,sem geta ekki unnið. Kjaranefnd Félags eldri borgara styður það samt, að þessir hópar fái leiðréttingu á sínum kjörum en kjaranefndin vildi,að þeir,sem eru illa staddir,fengju leiðréttingu á sínum kjörum um leið.Þar er um að ræða 28000 lífeyrisþega,sem sættu kjaraskerðingu 2009 vegna þess að tekjutryggingin var skert; skerðingarhlutfall hækkað úr 38,35% í 45%.Þessi hópur átti að fá leiðréttingu á sumarþinginu um leið og hinir.En það var ekki gert.Væntanlega fær þessi hópur leiðréttingu strax í haust,þegar þing kemur saman.Það má ekki dragast lengur.
Björgvin Guðmundsson
formaður kjaranefndar Félags eldri borgara
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.