Heimahjúkrun er undirmönnuð.Býr við fjársvelti!


 
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í DV í dag:Heimahjúkrun er undirmönnuð..Þar segir svo:
Heimahjúkrun hefur mjög mikilvægu hlutverki að gegna.Hún á að veita öldruðum og sjúkum aðhlynningu í heimahúsum. Það er yfirlýst markmið stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga, að æskilegt sé, að eldri borgarar og sjúklingar séu sem lengst í heimahúsum í stað þess að fara fyrr  á hjúkrunarheimili eða á spítala. Þessu markmiði er hvað eftir annað lýst af ráðamönnum, einkum við hátíðleg tækifæri; enda er það  miklu ódýrara fyrir samfélagið, að eldri borgarar séu áfram  í heimhúsum  þó heilsan sé farin að gefa sig. Hver dagur á hjúkrunarheimili eða á annari sjúkrastofnun er mjög dýr. Þegar þetta er haft í huga, er það mjög undarlegt, að stjórnvöld skuli svelta heimahjúkrun fjárhagslega  með þeim afleiðingum, að heimahjúkrun  er stórlega undirmönnuð. Það vantar t.d. mikið á, að nægilega margt hjúkrunarfólk vinni hjá heimahjúkrun í Reykjavík. Þetta finna eldri borgarar, sem njóta þjónustunnar, vel. Fjármagn til heilsugæslunnar í Reykjavík hefur verið skorið niður í ár með þeim afleiðingum m.a. að fækka þarf hjúkrunarfræðingum.
 
Heimaþjónustan rekur heimahjúkrunina
 
Í ársbyrjun 2009 tók velferðarsvið Reykjavíkur við rekstri heimahjúkrunar í höfuðborginni samkvæmt þjónustusamningi við velferðarráðuneytið. Heimaþjónusta Reykjavíkur rekur heimahjúkrunina.Hefur félagsleg heimaþjónusta og heimahjúkrun verið sameinuð undir einum hatti. Heimaþjónusta Reykjavíkur ber ábyrgð á allri heimahjúkrun í Reykjavík og á Seltjarnarnesi en  einnig er hún ábyrg fyrir heimahjúkrun um kvöld og helgar í Mosfellsbæ og næturþjónustu fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Markmið heimaþjónustunnar er að gera þeim, sem hennar njóta, kleift að búa heima  þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Þjónustan skal veitt í náinni samvinnu við sjúklinginn sjálfan og aðstandendur hans. Um markmið heimaþjónustu og heimahjúkrunar segir ennfremur: Heimahjúkrun sinnir m.a.  einstaklingum, sem þarfnast  sérhæfðrar hjúkrunar og víðtækrar hjúkrunar daglega eða oft á dag.Heimahjúkrun er ekki aðeins fyrir eldri borgara heldur fyrir fólk á  öllum aldri, sem á við heilsubrest eða skerta getu til daglegra athafna að stríða.
 
Ríkið greiðir kostnaðinn við heimahjúkrun 
 
Ríkið greiðir kostnaðinn við heimahjúkrun.Fyrstu 3 ár þjónustusamningsins greiddi ríkið alls 2,8 milljarða fyrir heimahjúkrun í Reykjavík.Undanfarin ár hefur kostnaður við heimahjúkrun verið í kringum 1 milljarð á ári. Árið 2011 nam þessi kostnaður 992 milljónum kr. Síðasta ár var kostnaðurinn 1116 milljónir kr. Í ár verður kostnaðurinn svipaður; hækkar aðeins sem svarar verðlagshækkunum og tæplega þó.  296 starfsmenn sinna heimahjúkrun á þessu ári, einkum hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar.Um 1000 heimili  á Stór-Reykjavíkursvæðinu njóta heimahjúkrunar að jafnaði.Tvöfalt fleiri einstaklingar fá þjónustuna.Á fjórða hundrað starfsmenn sinna félagslegri heimaþjónustu. Á fjórða þúsund  heimili njóta hennar.Kostnaður við félagslega heimaþjónustu er talsvert meiri en kostnaður við heimahjúkrun eða 1589 milljónir kr. sl. ár.
 
Of mikill hraði í heimahjúkrun
 
Hjúkrun er mjög vandasöm. Það er ekki unnt að vinna hana í flýti.En fjárskortur og undirmönnun heimahjúkrunar í Reykjavík  hefur leitt til þess, að reynt er að hraða vinnu við hjúkrun í heimahúsum sem mest. Það er slæm þróun, sem kemur óhjákvæmilega niður á gæðum þjónustunnar og leiðir jafnvel til þess að þjónusta er  skorin niður. Það samræmist ekki markmiðinu um að stuðla að því, að eldri borgarar og sjúklingar geti verið sem lengst í heimahúsum.Því miður virðist sem hugur fylgi ekki alltaf máli, þegar stjórnmálamenn gefa yfirlýsingar um að  vinna eigi að því, að aldraðir og sjúkir geti búið sem lengst í heimahúsum. Það er hvergi nærri nóg gert til þess að tryggja það, að unnt sé að framkvæma þessar hástemmdu yfirlýsingar.Hér þarf því að verða breyting á. Það verður að tryggja nægilegt fjármagn í heimahjúkrun.Það er miklu ódýrara fyrir samfélagið en að senda eldri borgara og sjúklinga fyrr á hjúkrunarheimili. Ég vil því skora á ríkisstjórnina, að  auka fjármagn til heimahjúkrunar. Það mun borga sig fyrir ríkissjóð, þegar til lengdar lætur.Heilbrigðisráðherra,Kristján Þór Júlíusson og fjármálaráðherra,Bjarni Benediktsson,  þurfa að taka höndum saman í þessu máli til þess að tryggja heimahjúkrun nægilegt fjármagn.
 
Björgvin Guðmundsson
fyrrv. borgarfulltrúi

 

 
 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband