Ómaklegar árásir á Steingrím

Af og til blossa upp umræður um endureisn bankanna eftir banka hrunið 2008.Gagnrýnd er sala bankanna til kröfuhafa og sagt,að bankarnir hafi verið seldir alltof ódýrt.Nær hefði verið,að íslenska ríkið hefði yfirtekið bankana.Nú síðast hefur Víglundur Þorsteinsson fyrrv.stjórnacrformaður BM Vallá bætt um betur og sagt,að Steingrïmur J.Sigfússon hafi sem fjármálaráðherra nánast gefið kröfuhöfum bankana. 

 
Það er mjög vinsælt hja Íslendingum að berja á kröfuhöfum föllnu bankanna.Það virðist gleymast í umræðunni,að þessir kröfuhafar lánuðu bönkunum hundruðir milljarða kr.(á annað þús.milljarða)Og við fall bankanna ákvað íslenska ríkið að vísa frá nær öllum kröfum erlendra banka og annarra kröfuhafa en að reyna að bjarga öllum íslenskum innistæðum og setja kröfur á íslenska aðila inn í nýju endurreistu bankana.Íslenska ríkið gat að sjálfsögðu ekki hirt þessar kröfur og innistæður úr föllnu bönkunum án greiðslu.Verðmætið var áætlað og metið af virtum endurskoðunarfyrirtækjum og marg endurskoðað.Við mat á þvi hvað ætti að færa yfirfærðar kröfur mikið niður var farð eftir mati endurskoðunarfyrirtækja.Íslenskir stjórnmálamenn höfðu ekkert með það mat að gera.Sama er að segja um innheimtu nýju bankanna á yfirfærðum kröfum.Tveir af föllnu bönkunum voru þá einkabankar og ríkisstjórnin hafði ekkert með það að gera hvernig kröfurnar voru innheimtar,hvort  það var með afslætti eða ekki.Landsbankinn var að mestu í eigu ríkisins en hlutafélag.  Svipaðar aðferðir við innheimtu munu hafa verið viðhafðar þar eins og í einkabönkunum.Tveir af endurreistu bönkunum voru seldir erlendum bönkum og öðrum kröfuhöfum.Var sú sala mjög hagstæð ríkinu og sparaði mikið og leiddi til þess,að ríkið þurfti að leggja bönkunum til miklu minna fé en áætlað hafði verið.Allt tal um,að bankarnir hafi verið seldir erlendum kröfuhöfum á gjafverði er út í hött og stenst ekki.Fagmenn fóru yfir öll möt og útreikninga og því fráleitt að ráðast á Steingrím J.Sigfússon og kenna honum um,að ekki hafi fengist hærra verð fyrir bankana. Allar hugmyndir um,að íslenska ríkið hefði átt að yfirtaka bankana eru einnig fráleitar.Ríkið hafði enga peninga til þess.

Geta má þess að lokum,að þegar ríkisstjórn Geirs Haarde snéri sér til IMF haustið 2008 með samþykki Seðlabankans og leitaði eftir fjárhagsaðstoð var það eitt af skilyrðunum,sem IMF setti,að Íslendingar mundu í viðskiptum við kröfuhafa bankanna virða alþjóðalög og meðhöndla þá af sanngirni.Það er því fráleitt að Íslendingar geti níðst á kröfuhöfunum  og út í hött að unnt sé að ná miklum peningum af þeim með bolabrögðum.

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband