Föstudagur, 13. mars 2015
Ríkisstjórnin sniðgengur alþingi.Brýtur gegn þingræðis- og lýðræðishefð
Þau tíðindi gerðust í gær,að ríkisstjórnin ákvað að taka fram fyrir hendurnar á alþingi og samþykkti að tilkynna ESB,að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að sambandinu að áliti Íslands.Þetta gerði ríkisstjórnin á bak við alþingi og sýndi þannig algert gerræði og brot á lýðræðis- og þingræðishefðum við afgreiðslu málsins.Ríkisstjórnin hafði áður tilkynnt alþingi,að lögð yrðu fram tillaga til þingsályktunar um mál þetta á sama hátt og gert var sl ár.Virist svo sem ríkisstjórnin hafi gugnað á því að leggja málið fyrir alþingi.
Það var alþingi Íslendinga sem samþykkti 2009 að sækja um aðild að ESB og að hefja samningaviðræður við sambandið.Alþingi eitt getur
afturkallað þá samþykkt.Þess vegna hefur bréf það,sem utanríkisráðherra afhenti formanni ESB í gær enga þýðingu.Ísland er eftir sem àður umsóknarríki að ESB.En ríkisstjórnin hefur hins vegar sýnt að hún hefur einræðistilhneigingu og er af þeim sökum tilbúinn að sniðganga þingræðið þó það sé áskilið í stjórnarskránni.Vonandi ætlar stjórnin ekki að breyta Íslandi í bananalyðveldi.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.