Almenningi er misboðið-7000 mótmæla

Yfir 7000 manns komu á Austurvöll í gær til þess að mótmæla gerræði ríkisstjórnarinnar í ESB-málinu.Mótmælafundurinn krafðist þess að ríkisstjórnin segði af sér.

Þessi fjöldi var jafnmikill og mest var á mótmælafundum búsáhaldabyltingarinnar.En það voru einmitt mótmæli almennings,sem hröktu ríkisstjórn Geirs H.Haarde frá völdum.Ljóst er að mikil mótmælaalda er í uppsiglingu.Almenningi er misboðið.Almenningur telur,að ríkisstjórnin sé að traðka á þingræðinu og lýðræðinu og  taka sér völd,sem eiga að vera hjá þinginu.Utanríkisráðherrann hefur hundsað þingið og sagt,að það væri verra að leggja mál sem þetta fyrir þingið og sæta málþófi og töfum jafnvel í marga mánuði.Með þessum ummælum opinberaði ráðherrann hina raunverulegu ástæðu fyrir  bréfaskriftunum til formanns ESB,þe.að losna við óþægilegt þing!Almenningi ofbýður þessi framkoma og jafnvel fólki,sem er algerlega andvígt ESB.Fólk vill verja grunngildin , alþingi,þingræðið og lýðræðið.Fólk vill,að ríkisstjórnin fari frá.

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband