Ísland er enn umsóknarríki

Umræður á alþingi um sendibréfið,sem utanríkisráðherra sendi til formanns ESB hafa leitt í ljós,að bréfið hafði engin áhrif.Það hafði álíka áhrif og póstkort!Það hefur vakið athygli,að sjálfstæðismenn hafa lagt sig fram um að verja bréfaskriftir utanríkisráðherra.Þannig mætti Bjarni Benediktsson,formaður Sjálfstæðisflokksins í kastljósi til þess að verja utanríkisráðherra en Sigmundur Davíð forsætisráðherra lét ekki sjá sig í þættinum.Þá hefur Birgir Ármannsson formaður utanríkismálanefndar gengið fram fyrir skjöldu og varið bréfaskriftir utanríkisráðherra.Var honum svo mikið í mun að verja ráðherrann,að hann sagði ,að nóg hefði verið að binda endi á aðildarviðræður við ESB með bréfi; ekki hefði þurft þingsályktunartillögu.Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar sagði að þá hefði líka dugað að ákveða með bréfi að hefja viðræður við ESB! Allir sæju hve fráleitt það væri.Það var ekki unnt að hefja viðræðurnar með bréfi og það er heldur ekki unnt að ljúka þeim með bréfi.

Fulltrúi stækkunarstjóra ESB sagði í gær,að Ísland væri enn umsóknarríki.Af því sést,að ekkert mark hefur verið tekið á bréfi utanríkisráðherra hjá ESB.Það eru aðeins tvær leiðir færar til þess að ljúka viðræðunum:Með nýrri ákvörðun alþingis eða með þjóðaratkvæðagreiðslu.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband