Laugardagur, 21. mars 2015
Mjótt á munum í Samfylkingunni
Úrslit í formannskosningu Samfylkingarinnar í gær urðu söguleg.Sitjandi formaður,Árni Páll Árnason, sigraði með eins atkvæðis mun.Með hliðsjón af því hve framboð Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur kom seint fram vekur það furðu,að hún skyldi fá nálega jafnmikið fylgi og Árni Páll Árnason,formaður.Er líklegt,að hún hafi undirbúið mótframboð á bak við tjöldin.Hafi svo verið hefur það farið furðu hljótt.Á þeirri tækni öld ,sem við búum á, er það furðulegt,að öllum flokksmönnum Samfylkingarinnar skyldi ekki gefinn kostur á,að kjósa formann rafrænt. Þannig var kosningin,þegar Árni Páll var upphaflega kosinn.Og þannig ætti kosningin að vera framvegis.Vonandi hefur formannskjörið í Samfylkingunni engin eftirköst þar í flokki.Gagnstæðar fylkingar munu slíðra sverðin.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.