Sunnudagur, 22. mars 2015
Breytt landslag í stjórnmálunum
Mikil fylgisaukning Pirata í skoðanakönnunum hefur vakið mikla athygli.Samkvæmt þessum könnunum eru Píratar orðnir stærsti flokkurinn og komnir upp fyrir Sjálfstæðisflokkinn.Samkvæmt könnun Fréttablaðsins féngu Píratar 29% ef kosið væri î dag en Sjálfstæðiflokkurinn fengi 23%.Samfylkingin fengi 16 %.
Hvað veldur þessari miklu fylgisaukningu Pirata.Erfitt er að útskýra hana.En benda má à,að mikið áhugaleysi á stjórnmálum ríkir meðal ungs fólks.Unga fólkið hefur engan áhuga á stjórnmálum og vantreystir gömlu flokkunum.Raunar á þetta sama við um nokkurn hluta almennings.Piratar eru valkostur fyrir þá,sem eru óánægðir.Þeir eru öðruvísi en hinir flokkarnir.Þeir eru óspilltir.Ég hygg,að unga fólkið hafi verið að fara yfir á Pírata í síðustu skoðanakönnunum.Og einhverjir fleiri óánægðir hafa farið yfir á Pirata.Spurningin er aðeins sú hvað þeim helst vel á fylginu.Ef þeir halda þessu fylgi í næstu kosningum eru þeir nokkuð öruggir í næstu ríkisstjórn.Og þó þeir fengju "aðeins" 20% hefðu þeir samt mjög sterka stöðu og kæmu til greina í ríkisstjórn.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.