Lífeyrir aldraðra verði 300 þús.á mánuði

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag:Lífeyrir aldraðra verði 300 þús.kr á mánuði.Þar ræðir Björgvin kröfu Starfsgreinasambandsins um að laun verkafólks hækki í 300 þúsund krónur á mánuði á 3 árum. Björgvin segir,að lïfeyrir aldraðra og öryrkja eigi að hækka jafnmikið og fara í 300 þúsund kr á mánuði.Það er lágmark til að lifa af mannsæmandi lífi.Neyslukönnun Hagstofunnar segir,að meðaltals útgjöld einhleypinga til neyslu séu 321 þúsund á mánuði. Engir skattar eru inn í þeirri tölu.Krafa Starfsgreinasambandsins er því nálægt niðurstöðu neyslukönnunar Hagstofunnar. Björgvin segir,að verkalýðshreyfingin eigi að styðja kröfu aldraðra um 300 þúsund króna lífeyri á mánuði og knýja hana fram í tengslum við kjaradeilurnar. Grein Björgvins má sjá í Fréttablaðinu í dag.

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband