Lífeyri aldraðra og öryrkja haldið niðri!

Hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja frá TR var ákveðin aðeins 3 % um sl áramót.Í fjárlagafrumvarpinu hafði verið gert ráð fyrir 3,5%hækkun en ríkisstjórnin skar það niður í 3%.Þessu mótmælti aðalfundur Félags eldri borgara í Rvk.Á fundi kjaranefndar félagsins í gær kom fram,að kaupmáttur launa hafði hækkað um 5,8% árið 2014 samkvæmt útreikningi Hagstofunnar.Krafðist fundurinn þess,að lífeyrir yrði hækkaður strax um það,sem á vantaði til þess að ná þessari sömu hækkun á lífeyri,5,8 %.Það er furðuleg ósvífni hjá ríkisstjórninni að skera hækkun á lífeyri við nögl,þegar hún skuldar lífeyrisþegum stór kosningaloforð eins og leiðréttingu lífeyris vegna kjaragliðnunar krepputímans en sú leiðrétting þýðir 20% hækkun á lífeyri frá TR.Aldraðir krefjast þess,að lífeyrir verði leiðréttur að fullu strax.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband