Góð fermingarveisla

Þórunn Elísa Þórisdóttir var fermd í Grensáskirkju í gær.Hún er dóttir Þóris sonar míns og konu hans Unnar Kristjánsdóttur.Að fermingunni lokinni var haldin vegleg fermingarveisla í sal Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17.Þar var fjölmenni.Þetta var eins og ættarmót.Þar voru t.d mætt systkini mín og makar þeirra en ég hafði ekki séð þau í háa herrans tíð.Synir okkar Dagrúnar og makar þeirra voru mætt (þ.e þau sem búa á Íslandi).Einnig voru flest barnabörn okkar í veislunni,m.a voru Dagrún Þórisdóttir og Reimar maður hennar komin með börnin alla leið frá Felli í Bakkafirði.Systir Dagrúnar og maður hennar voru komin frá Selfossi.Það var glatt á hjalla,veitingar frábærar og sunginn afmælissöngurinn til Þórunnar Elísu en hún átti afmæli á fermingardaginn.Þórunn Elísa var ánægð.Þetta var mikill gleðidagur í hennar lífi.-

Ég sendi henni eftirfarandi ritningarorð  í tilefni fermingardagsins:Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum.Með því að gefa gaum að orði þínu.Þessi rigningarorð  eru úr Davíðssálmum.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband