Kjaradeilurnar:Ríkisstjórnin gaf tóninn

Kjaradeilurnar eru í hörðum hnút og eiga eftir að harðna enn mikið á næstunni.Verkföllin í dag eru aðeins barnaleikur miðað við það,sem verður,þegar verkföllin skella á með fullum þunga.En hvers vegna eru átökin á vinnumarkaðnum svo mikil sem raun ber vitni.Ríkisstjórnin ber alla sök á því.Hún lofaði að halda aftur af gjaldskrárhækkunum eftir að gerðir voru hóflegir kjarasamningar í fyrra. En ríkisstjórnin stóð ekki við þessi fyrirheit sín.Siðan samdi rîkið við lækna um 30% kauphækkun og gaf þar með tóninn.Atvinnurekendur býsnast yfir því, að verkafólk í Starfsgreinasambandinu fari fram á 300 þúsund króna laun eftir 3 ár og segja að þetta sé 30% krafa.En þetta er nákvæmlega jafnmikil krafa og hjá læknunum.Munurinn er aðeins sá ,að læknarnir voru að fá mikla hækkun á há laun en verkafólk fer fram á ríflega hækkun á lág laun.Eða hver treystir sér til þess að lifa af rúmlega 200 þüsund krónum á mánuði?Ekki stjórnarmenn í Granda.Það er verið að bjóða verkafólki 6 þúsund króna hækkun á mánuði.Hækkanir þær,sem læknar fengu, námu hundruðum þúsunda króna.Það verður að borga verkafólki mannsæmandi laun.Fyrr verður ekki friður á vinnumarkaðnum.300 þúsund krónur á mánuði er algert lágmark og mjög hófstillt krafa.

      Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband