Miðvikudagur, 22. apríl 2015
Eldri borgarar eiga að lifa með reisn
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag um kjör aldraðra: Eldri borgarar eiga að lifa með reisn.Þar fjallar hann um þann nánasarlega lífeyri sem stjórnvöld og TR skammta eldri borgurum.Það er svo skammarlega lítið, að engin leið er að lifa mannsæmandi lífi af þeirri hungurlús,engin leið fyrir eldri borgara að lifa með reisn.Grunnlífeyrir í Noregi er 125 þúsund krónur á mánuði en hér er Grunnlífeyrir aðeins 36 þúsund krónur á mánuði. Það verður að stórhækka lífeyri aldraðra og öryrkja hér á landi og hætta skerðingum tryggingabóta.Það er krafa okkar í dag.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:40 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Björvin Guðmundsson,
Hvernig hugnast þér skýrsla unnin af Öryrkjabandalagi Íslands(ÖBÍ) er fjallar um starfsgetumat ?
VIRKT SAMFÉLAG
Tillögur ÖBÍ að heildstæðu kerfi starfsgetumats og framfærslu á grundvelli þess
http://www.obi.is/i-brennidepli/nr/1759
Virðingarfyllst,
Helga Björk Magnúsdóttir og Grétudóttir.
tónlistarkennari, aktívisti,
harðsvíraður guðspekissinni og
lögformlegur eigandi Dómkirkjunnar.
ÖRYRKI Í BOÐI STJÓRNVALDA.
Sólvallagötu 50,
101, Reykjavík.
Íslandi.
songholl@internet.is
Stillið siðferðiskompásinn og lyftið mennskunni í æðra veldi !
Helga Björk Magnúsdóttir og Grétudóttir (IP-tala skráð) 22.4.2015 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.