Þriðjudagur, 28. apríl 2015
Sterkt viðtal við Hönnu Birnu
Stöð 2 tók viðtal við Hönnu Birnu í gærkveldi,í þættinum Ísland í dag. Þetta var mjög sterkt viðtal og Hanna Birna stóð sig mjög vel í því.Þetta var fyrsta viðtalið sem hún veitir fjölmiðlum í 4 mánuði.
En hvers vegna dró hún sig í hlé frá fjölmiðlum í svo langan tíma. Svarið kom í viðtalinu: Hún var örmagna eftir lekamálið. það fór mjög illa
með hana andlega.Og auk þess átti hún við líkamleg veikindi að stríða,svo sem of háan blóðþrýsting,brjósklos og æxli (þykkildi) á höfði.Æxlið reyndist góðkynja.Hún kvaðst góð til heilsunnar núna.
Hanna Birna sagðist hafa lært mikið á lekamálinu. Hún kvaðst hafa gert mistök í málinu.En það kom fram,að hún vissi ekkert um það hver hafði lekið fyrr en aðstoðarmaður hennar játaði að hafa gert það. Þegar hann hafði skýrt henni frá því varð henni svo mikið um það,að hún fór að gráta.Hún reyndist ekki sá harði nagli,sem hún hélt,að hún væri.
Nú vill Hanna Birna halda áfram í stjórnmàlum og reyna að bæta þau.Hún er breytt,auðmjúkari en áður.Hún ætlar áfram að gefa kost á sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins.Hún tók sæti á alþingi í gær.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.