Grunnlífeyrir aldraðra og öryrkja margfalt hærri í grannlöndunum en hér

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag um kjör aldraðra.Þar kemur fram,að grunnlífeyrir aldraðra og öryrkja er margfalt hærri í grannlöndum okkar en hér. Grunnlífeyrir hér er 36 þúsund krónur á mánuði hjá öldruðum og öryrkjum en í Noregi er hann 125 þúsund krónur á mánuði og auk þess er greiddur jafnhár viðbótarlífeyrir til þeirra sem hafa litlar eða engar aðrar tekjur frá almannatryggingum.Grunnlífeyrir er svipaður í Svíþjóð eða 124 þúsund á mánuði og í öllum grannlöndum okkar er Grunnlífeyrir margfalt hærri en hér. Ef borinn er saman Heildarlífeyrir aldraðra og öryrkja verður hið sama upp á teningnum.Heildarlífeyrir aldraðra er miklu hærri en slíkur lífeyrir hér.Í Noregi er Heildarlífeyrir allt að 385 þúsund krónur á mánuði eða 70% hærri en hér.Ljóst er því,að íslenskir stjórnmálamenn hafa ekki staðið sig í því að gæta kjara lífeyrisþega á Íslandi.Þeir hafa sofið á verðinum.Ísland rekur lestina í kjaramálum aldraðra og öryrkja á Norðurlöndum?Og Bretland,Þýskaland og Frakkland hefur einnig farið fram úr okkur.Við verðum því að taka okkur á og stórbæta kjör aldraðra og öryrkja.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband