Föstudagur, 8. maí 2015
Eldri borgarar krefjast þess,að staðið verði við kosningaloforðin
Á nýafstöðnu þingi Landssambands eldri borgara kom fram hörð og ákveðin krafa um,að ríkisstjórnin stæði við kosningaloforðin um að kjaraskerðing ( kjaragliðnun)lífeyrisþega á krepputímanum yrði leiðrétt.En það þýðir a.m.k. 20 % hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja eða 45 þúsund krónur hjá einhleypum lífeyrisþega,sem ekki hefur aðrar tekjur.Um þetta var samþykkt ályktun. Samþykkt var,að ekki ætti að skattleggja lágmarkstekjur til framfærslu.Landsfundurinn krafðist þess,að stjórnvöld virtu ákvæði og anda laganna um almannatryggingar og hækkuðu lífeyri árlega í samræmi við hækkun launa og verðlags.Þetta hefur ekki verið gert.Lögin hafa ítrekað verið brotin.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:51 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.