Enga skerðingu á lífeyri aldraðra og öryrkja

  1. Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag um skerðingu Tryggingastofnunar á lífeyri þeirra eldri borgara og öryrkja,sem fá lífeyri úr lífeyrissjóðum. Enda þótt hátt í 3000 milljarðar séu í lífeyrissjóðunum fá þeir,sem greitt hafa í sjóðina alla sína starfsævi tiltölulega lítið greitt úr kerfinu í lífeyri,þar eð Tryggingastofnun skerðir mjög mikið tryggingabætur til aldraðra og öryrkja vegna þeirra greiðslna,sem þeir fá úr lífeyrissjóðunum.Þetta er líkt og eignaupptaka,þar eð þeir,sem greitt hafa í lífeyrissjóðina eiga lífeyrinn þar. Það verður að stöðva þessar skerðingar.Það var aldrei meiningin,þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir,að þeir mundu skerða lífeyri frá almannatryggingum.Lífeyrissjóðirnir áttu að vera viðbót við almannatryggingar.

 

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband