Fimmtudagur, 11. júní 2015
Miða á við neyslukönnun Hagstofunnar
Á heimasíðu Pirata kemur fram að Piratar vilji að lögfest verði Lágmarksframfærsluviðmið.Það er góð hugsun í því. En gallinn er aðeins sá,að allar tölur,sem komið hafa fram um Framfærsluviðmið eru mjög lágar,td tölur velferðarráðuneytisins.Hið sama er að segja um viðmiðunartölur umboðsmanns skuldara og upphæð atvinnuleysistrygginga fyrir einhleypinga (184 þús kr á mánuði)Hætt er því við því að alþingi mundi lögfesta mjög lága upphæð,ef til þess kæmi.
Ég tel að miða eigi við neyslukönnun Hagstofunnar. Samkvæmt henni er meðaltalsneysla (útgjöld án skatta)einhleypinga 321 þúsund á mánuði .Lífeyrir aldraðra og öryrkja fyrir einhleypinga frá TR ætti að lágmarki að vera sama upphæð.Það er lágmark til þess að unnt sé að lifa mannsæmandi lífi.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:11 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.