Á að brjóta mannréttindi á öldruðum og öryrkjum?

Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavik harmaði á fundi sínum  í gær neikvæð viðbrögð fjármálaráðherra við eðlilegri leiðréttingu á lífeyri aldraðra í kjölfar nýrra kjarasamninga verkalýðsfélaganna.Krafa verkalýðshreyfingarinnar um 300 þúsund króna lágmarkslaunn árið 2018 hefur náð fram að ganga.Í samræmi við það eiga eldri borgarar að fá sambærilega hækkun á sínum lífeyri enda er það lögbundið  að við hækkun lífeyris sé tekið mið af launaþróun en lífeyrir hækki þó aldrei minna en vísitala neysluverðs.Kjaranefndin skoraði á fjármálaráðherra að endurskoða afstöðu sína til leiðréttingar á lífeyri eldri borgara.Síðan sagði: Sé það meining ríkisstjórnarinnar að hafa af eftirlaunafólki (og öryrkjum) sambærilega hækkun á lífeyri og fólk á almennum vinnumarkaði fær á sinum launum er það hreint mannréttindabrot.Það er lögbundið hér  og í samræmi við alþjóðasamninga um mannréttindamál,að eldri borgarar njóti sama réttar og aðrir þegnar þjóðfélagsins.Þeir gera það ekki ef launamenn,sem eru í starfi fá kjarabætur en ekki þeir,sem eru á eftiraunum.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband