Mánudagur, 15. júní 2015
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR hraktir úr landi
Eftir að alþingi setti lög á hjúkrunarfræðinga og BHM og bannaði verkfall þeirra hefur fjöldi hjúkrunarfræðinga,geislafræðinga og fleiri sagt upp störfum.Þessir aðilar telja,að ríkið hafi niðurlægt þá,í fyrstu með þvi að virða ekki samningsrétt BHM og hjúkrunarfræðinga,bjóða engar kjarabætur og banna síðan verkfall þeirra.HJÚKRUNARFRÆÐINGAR benda á,að læknar hafi verið miklu lengur i verkfalli án þess að fá á sig lög og síðan sömdu þeir um 30% kauphækkun án þess,að það væri talið ógna stöðugleika.HJÚKRUNARFRÆÐINGAR veittu undanþágur í verkfallinu til þess að unnt væri að sinna öllum bráða tilvikum og öðrum bráðnauðsynlegum störfum.Þeir telja því ekki hafa verið hættuástand.Hins vegar mun nú skapast hættuástand vegna uppsagna hjúkrunarfræðinga í kjölfar lagasetningar.11 HJÚKRUNARFRÆÐINGAR á lungna- og hjartadeild segja upp í dag.Alls starfa 20 á deildinni.
Hún verður því óstarfhæf.BHM mun að öllum líkindum stefna ríkinu vegna laganna,sem bönnuðu verkfall þeirra. Samningsréttur verkalýðsfélaganna er stjórnarskrárvarinn og því er líklegt að BHM mundi vinna mál gegn ríkinu.
Það er alveg ljóst,að ríkisstjórnin hefur mismunað læknum og hjúkrunarfræðingum.Hún samþykkti 30% kauphækkun til lækna og lét átölulaust miklu lengra verkfall hjá þeim en vísar kröfum hjúkrunarfræðinga um kjarabætur vegna menntunar á bug.Hjúkrunarfræðingar eru jafnmikilvægir fyrir heilbrigðiskerfið eins og læknar.Þess vegna er afstaða ríkisstjórnarinnar óskiljanleg.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.