Þriðjudagur, 16. júní 2015
Foringjadýrkun í Framsókn (mikil er trú þín kona)
Hjálmar Bogi Hafliðason,einn af nýjum þingmönnum Framsóknar,skrifar grein í Fréttablaðið í dag og mærir þar foringja Framsóknar,Sigmund Davíð, sem eitthvert mikilmenni.Hann segir Sigmund mann hinna stóru orða,sem hafi staðið við öll stóru orðin.En það er nú öðru nær eins og nú verður rakið:
Sigmundur lofaði að lækka skuldir heimilanna um 300 milljarða með fjármunum frá þrotabúum bankanna. Útkoman var 80 milljarðar sem skattgreiðendur voru látnir borga.En ekki nóg með það:Allt,sem fólk hafði fengið í skuldalækkun hjá fyrri ríkisstjórn var dregið frá. Meira séð segja vaxtabætur og vaxtalækkanir. Það var því lítið eftir hjá sumum og fróðlegt væri að sjá hvað mikið er eftir af þessum 80 milljörðum,þegar búið er að draga allt frá sem menn fengu í tíð fyrri stjórnar.En munurinn er sá,að ríkisstjórn Jóhönnu veitti fólki skuldalækkanir og vaxtalækkanir í kyrrþei en núverandi ríkisstjórn þeytir lúðra í Hörpu í hvert sinn sem hún gerir eitthvað.Skuldalækkanir og vaxtalækkanir fyrri ríkisstjórnar voru jafnmiklar og það,sem núverandi ríkisstjórn hefur gert í þessu efni.
Framsókn undir forustu Sigmundar Davíðs hefur ekki staðið við stóru orðin sem öldruðum og öryrkjum voru gefin. Því var lofað,að kjaragliðnun ( Kjaraskerðing) krepputímans yrði leiðrétt. Það hefur ekki verið staðið við það.Því var lofað að afturkölluð yrði öll kjaraskerðingin frá 2009.Það hefur ekki
verið staðið við það nema að hálfu leyti.Afnàm hafta er mál,sem allir flokkar hafa unnið að og Seðlabankinn fyrst og fremst. Það getur því enginn einn flokkur eignað sèr það mál og ekki er búið að afnema höftin enn.Það er aðeins búið að blása í lúðrana.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.