Bætum kjör aldraðra og öryrkja myndarlega

Við skulum strengja þess heit nú á þjóðhátíðardaginn  2015 að bæta kjör aldraðra og öryrkja myndarlega þannig að þeir geti lifað mannsæmandi lífi og með reisn.Margir meðal aldraðra og öryrkja eiga erfitt með það í dag að láta lífeyrinn duga út mánuðinn.Það koma í hverjum mánuði margir eða hringja til Félags eldri borgara í Reykjavík  og segja frá því,að þeir eigi ekki fyrir mat síðustu daga mánaðarins.Það er til skammar fyrir Ísland,að ástandið skuli vera svona slæmt hjá lífeyrisþegum.Við erum að tala um þá kynslóð lífeyrisþega,sem hefur byggt upp Ísland.Stjórnvöld verða strax að bæta hér úr.Það verður að stórhækka lífeyri eldri borgara og öryrkja strax og það verður að stöðva strax skerðingu tryggingabóta lífeyrisþega frá TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.

Hækka þarf lífeyri frá TR í 321 þúsund kr á mánuði,ekki á þremur árum,heldur strax eða í tvennu lagi.Þetta er lágmarksupphæð til þess að geta lifað mannsæmandi lífi.

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband