Hefur jöfnuður aukist á Íslandi?

Í þjóðhátíðarræðu sinni í gær sagði Sigmundur Davíð, forsætisráðherra,að jöfnuður hefði aukist hér á landi og væri nú meiri en nokkru sinni fyrr.Á sama tíma og forsætisráðherra sagði þetta var fólk við hliðina á honum að mótmæla slæmum lífskjörum á Íslandi og heimta,að ríkisstjórnin færi frá!Það fólk hafði ekki fundið fyrir betri lífskjörum.

Hagstofan birti fyrir nokkru niðurstöðu rannsóknar á tekjuskiptingu hér á landi og til samanburðar í grannlöndum okkar.Rannsókn Hagstofunnar leiddi í ljós,að jöfnuður fór að aukast hér í stjórnartíð Samfylkingar og VG enda gerði sú ríkisstjórn ráðstafanir til þess að auka jöfnuð. Samanburðartölurnar eru frá árinu 2013, en það ár stjórnaði Samfylking og VG hálft árið og nýja stjórnin hálft árið.Augljóst er,að það eru það verk vinstri stjórnarinnar,sem eru  þar til mælingar.Hægri stjórnin,sem nú er við völd, hefur gert ráðstafanir til þess að auka ójöfnuð á ný.Þess mun áreiðanlega gæta í næstu mælingum.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband