Fimmtudagur, 18. júní 2015
Efst á baugi: Höggmynd á hreyfingu!
Í bók minni Efst á baugi,æviminningum,er eftirfarandi frásögn:
Einhverju sinni varð mér litið út um gluggann á skrifstofu minni í viðskiptaráðuneytinu og horfði yfir Arnarhólinn.Sá ég þá höggmynd hreyfast rólega hinum megin við Arnarhólinn.Höggmyndin var greinilega á þaki bifreiðar.Er ég hafði horft um stund á höggmyndina hreyfast eins og í lausu lofti,varð mér ljóst, að hér var á ferð höggmynd eftir Björgvin,son minn,útskriftarverkefni,sem hann var að flytja frá afmælissýningu Myndlista-og handíðaskóla Íslands á Kjarvalsstöðum heim í Hlyngerði.Dró myndin fjölmarga forvitna gesti að og höfðu flestir gaman af verkinu.En ekki allir.Til dæmis var sr. Jakob Jónsson nokkuð óánægður.Höggmyndin var af nakinni konu,sem var mjög brjóstamikil.Hægt var að lyfta öðru brjóstinu upp og inni í því var lítið dúkkubarn.Átti það að vísa til árs barnsins,sem var þetta ár.Styttan nefndist Í tilefni barnaárs og var mótuð úr pappírsmassa.Það var sniðugt uppátæki hjá Björgvin að prýða garðinn með styttunni,sem var að sjálfsögðu gert í samráði við okkur Dagrúnu.
Björgvin Guðmundssson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.