Margir ríkir fengu skuldaleiðréttingu!

Samkvæmt skýrslu fjármálaràðherra,sem lögð var fram á alþingi,fengu 1250 fjölskyldur,sem greiddu auðlegðarskatt,skuldaleiðréttingu. Þetta eru fjölskyldur,sem áttu eignir yfir 100 milljónum hver,ef til vill ríkustu fjölskyldur landsins.Hvers vegna þessar fjölskyldur fengu skuldalækkun,sem skattgreiðendur greiddu,er óskiljanlegt.Hins vegar fengu leigjendur og 3o ára og yngri enga aðstoð.Alls nemur aðstoð ríkiss og bankanna á tímabilinu 2009-2013-14 216 milljörðum kr.Það vill segja,að áður en skuldalækkun núverandi ríkisstjórnar var framkvæmd höfðu skuldir verið lækkaðar um 136 milljarða af fyrri ríkisstjórn og bönkunum.En við þessa 136 milljarða skuldalækkun var ekki jafnmikill lúðrablástur og  við lækkunina hjá núverandi ríkisstjórn.

Framsóknarflokkurinn sagði fyrir síðustu kosningar að kröfuhafar föllnu bankanna mundu greiða skuldalækkunina.Það varð ekki. Skattgreiðendur  voru látnir greiða þessa lækkun og þar á meðal fyrir 1250 ríkustu fjölskyldur landsins!Allir þurftu að borga en ekki nutu allir.

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband