Föstudagur, 3. júlí 2015
Verið að brjóta mannrèttindi á öldruðum og öryrkjum
Það er verið að brjóta mannréttindi á öldruðum og öryrkjum.Nær allir launþegar landsins eru að fá kjarabætur en öldruðum og öryrkjum er neitað um hækkun á sínum lífeyri.Þetta er brot á jafnræðisreglu stjôrnarskrárinnar.Það er einnig verið að brjóta það ákvæði stjórnarskrárinnar að ríkið eigi að veita öldruðum og öryrkjum aðstoð.Í lögum um málefni aldraðra segir,að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra þegna þjóðfélagsins.Það er verið að brjóta það ákvæði.Ef ríkisstjórnin lætur ekki segjast og veitir lífeyrisþegum hliðstæðar kjarabætur og Láglaunafólk er að fá, verða lífeyrisþegar að grípa til róttækra ráðstafana.Þeir munu ekki láta valta yfir sig.Þó lífeyrisþegar hafi ekki verkfallsrétt hafa þeir önnur úrræði.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.