Þjóðin fái eðlilegan arð af auðlindum sínum

Mesta misréttið í íslensku þjóðfélagi i dag er það,að örfáir aðilar skuli einoka sjávarauðlind okkar og greiða þjóðinni sáralítið afgjald fyrir nýtinguna.Fyrsta verk núverandi ríkisstjórnar var að lækka fiskveiðigjaldið,sem vinstri stjórnin hafði lagt á nýtingu sjávarauðlindarinnar og var það þó alltof lágt fyrir.Með þessari aðgerð sýndi ríkisstjórnin hug sinn til þjóðarinnar.Hún sýndi með þessu,að hún vildi ekki að  þjóðin fengi eðlilegan arð af sjávarauðlindinni heldur vildi hún hygla  nokkrum sægreifum.Ef ríkisstjórnin hefði haldið því gjaldi,sem hafði verið ákveðið af fyrri stjórn og hækkað það hefði hún  fengið aukið fjármagn til heilbrigðismála og annarra velferðarmála.Íslendingar eiga nægar auðlindir.Ef þjóðin fær eðlilegan arð af þessum auðlindum getur hún haft næga fjármmuni til þess að standa undir velferðarkerfi sínu.Þjóðin á sjávarauðlindina,hún er sameiginleg.Þjóðin á því að fá þann arð af henni sem hún telur sanngjarnan og eðlilegan.Þetta er ekki skattur.Þetta er afgjald fyrir notkun.Það getur enginn nýtt neitt án þess að greiða fyrir það. En sægreifarnir fengu kvótana upphaflega fría og nýttu þá árum saman án greiðslu.Það var nokkurs konar arðrán.Mál er að linni.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband