Mánudagur, 23. apríl 2007
Íhaldið hefur eyðilagt velferðarkerfið hér
Morgunblaðið ,sem vill vera hlutlaust fréttablað og opið fyrir almenna umræðu, missir alltaf hlutleysisgrímuna ,þegar kosningar nálgast og þá gengur Morgunblaðið í lið með íhaldinu og heldur uppi áköfum vörnum fyrir það. Þetta mátti sjá í Reykjavíkurbréfi um helgina og í forustugrein í morgun. Nú er aðal áróðursbragðið þetta: Stjórnarandstaðan hefur ekkert á ríkisstjórnina. Hún getur ekki gagnrýnt hana fyrir neitt. Þetta er sniðugt áróðursbragð. Og með Göbbelsaððferðinni ( endurtaka nógu oft) gæti það heppnast.
Íhaldið hefur eyðilagt velferðarkerfið
Samfylkingin hefur gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega. Stærsta gagnrýnisefnið er þetta: Ríkisstjórnin hefur eyðilagt velferðarkerfið. Hún hefur eyðilagt almannatryggingarnar. Áður voru íslensku almannatryggingarnar einhverjar þær bestu í heimi. Í dag hafa þær drabbast svo mikið niður og dregist svo aftur úr, að þær standa langt að baki almannatryggingum á Norðurlöndum og íslenska velferðarkerfið siglir hraðbyri í átti til þess bandaríska, sem er eitt hið versta í heimi. Kjör aldraðra eru mikið verri hér en á hinum Norðurlöndunum, kjör öryrkja eru mikið verri hér en á hinum Norðurlöndunum, kjör barna eru mikið verri hér en á hinum Norðurlöndunum og þannig mætti áfram telja. Aldraðir búa við smánarkjör. Þeir fá 113 þúsund úr almannatryggingum ef þeir eru ekki í lífeyrissjóði. 10.000 eldri borgarar hafa aðeins rúmar 100 þúsund á mánuði. 400 eldri borgarar bíða eftir rými á hjúkrunarheimili, á annað þúsund býr í tvíbýli eða margbýli á hjúkrunarheimilum. Í Danmörku búa allir eldri borgarar í einbýli eða með maka. 5000 börn á Íslandi eru undir fátæktarmörkum. Ófremdarástand ríkir í heilbrigðiskerfinu. Biðlistar eru í öllum greinum. Það er löng bið eftir aðgerðum og geðsjúk börn komast ekki inn á spítala.Þar eru langir biðlistar.Þannig er ástandið hjá einni ríkustu þjóð í heimi. Og svo segir Mbl. , að ástandið sé gott og stjórnarandstaðan finni ekkert sem að sé.
Mörg hagstjórnarmistök
Stjórn efnahagsmála er í molum. Verðbólgan er langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Gerð hafa verið margvísleg hagstjórnarmistök eins og sýnt var fram í skýrslu Samfylkingarinnar um efnahagsmál undir ritstjórn Jóns Sigurðssonar fyrrverandi ráðherra Alþýðuflokksins. Vextir hér eru þeir hæstu í Vestur- Evrópu. Verðlag er hið hæsta hér í Vestur-Evrópu. Almenningur býr hér bæði við okurvexti og okurverðlag en Mbl. segir allt vera í lagi. Ríkisstjórnin þorir ekki einu sinni að ræða afstöðu Íslands til Evrópusambandsins þó aðild að Myntbandlagi Evrópu og að ESB mundi færa almenningi hagstæða vexti og hagstætt verðlag, eða m.ö.o. mikla kjarabót.
Ríkisstjórn valdníðslu
Það er af nógu að taka þegar gagnrýna á ríkisstjórnina. Og eitt alvarlegasta gagnrýnisefnið er pað,að ríkisstjórnin hefur beitt valdníðslu og misbeitingu valds gegn þegnum landsins. Það eitt er nægilegt til þess að hún fari frá. Valdið hefur spillt stjórninni.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:46 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.