Ráðamenn lemja hausnum við steininn

Samningur við hjúkrunarfræðinga var kolfelldur enda var ekki ein króna í honum fyrir menntun,aðeins 6% hækkun á þessu ári,miklu minni hækkun en hjá öðrum. Ráðamenn lemja hausnum við steininn og vilja,að gerðardómur ákveði laun hjúkrunarfræðinga enda þótt þeir megi vita,að það leysir ekki deiluna,þar eð dómnum eru svo þröngar skorður settar í lögunum um dóminn.Nær hefði verið að setst væri að samningaborði á ný og ríkið hefði boðið meiri kjarabætur fyrir hjúkrunarfræðinga ( með hliðsjón af lækna samningunum)Kannski gæti ríkisstjórnin fengið leyfi hjá atvinnurekenda sambandinu fyrir því að semja við hjúkrunarfræðinga!

Heilbrigðisráðherra undirbýr nú innflutning á erlendum hjúkrunarfræðingum.Hann vill heldur borga þeim miklu hærri laun en isl HJÚKRUNARFRÆÐINGAR fóru fram á.Það verður miklu dýrara fyrir ríkið.Þvermóðska ráðherranna ætlar að reynast okkur dýrkeypt.

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 

 

H


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband