Stjórnmálaáhugi vaknar

Sumarið 1949 var ég að vinna í byggingarvinnu hjá Byggingarfélaginu Brú.Unnið var við byggingu Gagnfræðaskóla Austurbæjar á Skólavörðuholti.Var ég þá m.a að vinna við handlöngun hjá Eggert G.Þorsteinssn,múrara.Hann var þá formaður Múrarafélags Reykjavíkur,mjög pólitískur og fór strax að ræða pólitík við unga handlangarann.Ég var þá farinn að hugsa nokkuð um stjórnmál.Foreldrar mínir voru báðir jafnaðarmenn og kjósendur Alþýðuflokksins.Ég hafði hugsað talsvert um misskiptinguna í þjóðfélaginu og þá staðreynd,að sumir voru ríkir en aðrir fátækir og sumir áttu við svo kröpp kjör að búa,að þeir höfðu tæplega í sig og á.Mér fannst þetta ranglátt og vildi vinna að því að breyta þjóðfélaginu.Eggert spurði mig hvort ég vildi ekki ganga í Félag ungra jafnaðarmanna og það reyndist auðsótt.Ég var strax til í það.Gekk ég í FUJ í Reykjavík og hóf þegar að starfa í félaginu af fullum krafti.-Ég var þá tæplega 17 ára gamall.( Efst á baugi.Ævisaga BG)

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband