Óþarfi að byggja nýtt stórhýsi fyrir Landsbankann

Landsbankinn hefur ákveðið að byggja nýtt stórhýsi yfir starfsemi sína við hlið Hörpu. Þetta er óþarfi en auk þess er tímasetningin slæm.Það er þensla í efnahagskerfinu og hættumerki framundan.Ástandið minnir óþægilega mikið á árið fyrir bankahrunið.Þegar þannig er ástatt eiga opinberir aðilar  að halda að sér höndum í framkvæmdum.Landsbankinn er að miklum meirihluta í eigu ríkisins.Ríkið getur ekki stuðlað að aukinni þenslu.Við höfum væntanlega lært eitthvað af hruninu.-Það er engin þörf á glæsihöll yfir Landsbankann.Landsbankinn getur komist af  með það húsnæði, sem hann hefur í dag.Það verður æ algengra,að viðskiptavinir bankans sinni sínum viðskiptum í heimbanka. Væntanlega  dregur það eitthvað úr húsnæðisþörfinni.Það kann að vera að það sé hagstæðara fyrir bankann að hafa alla starfsemi sína undir einu þaki.En það er ekki þægilegra fyrir viðskiptavinina. Bygging glæsihallar yfir Landsbankann kemur ekki til greina í dag.

Björgvin Guðmundson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband