Þriðjudagur, 21. júlí 2015
Hvert stefnir Samfylkingin?
- Björgvin Guðmundsson skrifar grein um Samfylkinguna í DV í dag.Honum farast svo orð:
Hvert á Samfylkingin að fara? Hver á stefna Samfylkingarinnar að vera? Þetta eru spurningar, sem ég ætla að reyna að svara í þessari grein.Samfylkingin hefur átt á brattann að sækja frá síðustu alþingiskosningum.Um tíma virtist flokkurinn vera að ná vopnum sínum og fylgið jókst mikið í skoðanakönnunum en síðan virðist hafa fjarað aftur undan flokknum.Hið sama má að vísu segja einnig um hina gömlu flokkana,Framsókn,VG og Sjálfstæðisflokkinn.
Flokkur jafnaðarmanna á Íslandi
Samfylkingin er flokkur jafnaðarmanna á Íslandi. Flokkurinn á að boða jafnaðarstefnuna en gerir það ekki stöðugt, a.m.k verður almenningur ekki var við það.Ég á ekki við það, að boða eigi hin gömlu úrræði jafnaðarstefnunnar, þjóðnýtingu og áætlunarbúskap.Nei,flokkurinn á að boða nútíma jafnaðarstefnu en gerir það ekki nægilega vel.Almenningur á ekki að velkjast í vafa um það fyrir hvað Samfylkingin stendur. Helstu úrræði nútíma jafnaðarstefnu eru fullkomnar almannatryggingar,réttlátt skattakerfi,sem stuðli að sem mestum jöfnuði í þjóðfélaginu og húsnæðiskerfi, sem tryggi láglaunafólki leiguíbúðir og eignaríbúðir á hagstæðum kjörum.Full atvinna er eitt mikilvægasta stefnumál jafnaðarmanna og nátengd því er skynsamleg nýting náttúruauðlindanna og það stefnumál jafnaðarmanna, að þjóðin fái sanngjarnan arð af auðlindum sínum.Tryggja þarf að framleiðslutækin séu nýtt að fullu.Jafnaðarmenn berjast fyrir bættum kjörum launafólks. Þeir styðja frjálsa samkeppni en leggja áherslu á öflugt og gott eftirlit með atvinnu-og viðskiptalífi.Ég hef trú á þvi, að ef Samfylkingin boðar ákveðið jafnaðarstefnuna, muni flokkurinn ná vopnum sínum á ný.
>>
>> Sjávarauðlind í hendur þjóðar á ný
>>
>> Það, sem ég tel,að jafnaðarmenn eiga að leggja mesta áherslu á í boðskap sínum í dag, er eftirfarandi:
>> Sjávarauðlindin verði færð í hendur þjóðarinnar á ný.Fiskveiðiheimildirnar verði boðnar upp eins og stjórnlagaráð vildi og samþykkti.Almannatryggingar verði stórefldar og gerðar réttlátari.Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður verulega og verði í byrjun hliðstæður kaupi launþega (ófaglærðra).Stefnan í skattamálum stuðli að jöfnuði. Skattar verði lækkaðir og afnumdir á þeim tekjulægstu og hækkaðir á þeim tekjuhæstu.Auðlegðarskattur verði tekinn upp.Skattleysismörkin verði mikið hækkuð.Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði skattfrjáls.Stefnan í húsnæðismálum tryggi nægilegt framboð,á hagstæðum leigu og eignaríbúðum.Verkamannabústaðakerfið verði endurreist.
>>
>> Boða jafnaðarstefnuna
>>
>> Ef Samfylkingin kemur með framangreind mál, sem eru flest gömul stefnumál jafnaðarmanna, mun það ekki fara á milli mála, að Samfylkingin er að berjast fyrir jafnaðarstefnunni.Undarfarið hafa ýmsir málsmetandi jafnaðarmenn látið í sér heyra og varpað fram spurningu um það hvað mætti gera til þess að efla Samfylkinguna á ný. Að mínu mati er það mjög einfalt eins og ég hef bent á hér: Að boða jafnaðarstefnuna.
>>
>> Ekki Árna Páli að kenna
>>
>> Samfylkingin mældist með mjög lítið fylgi í síðustu skoðanakönnun MMR eða aðeins 9,3%.Að vísu finnst mér, að Samfylkingin hafi oft mælst með minna fylgi hjá MMR en í öðrum könnunum.En ég tel þó ekki rétt að hundsa könnun MMR.Hún veitir vísbendingu eins og aðrar kannanir.Sumir spyrja: Getur þetta verið Árna Páli formanni að kenna. Ekki tel ég svo vera. Ég tel þetta vera vegna stefnunnar.Hún hefur ekki verið nægilega skýr undanfarið og úr því þarf að bæta.Þar bera allir þingmenn flokksins sök.En auk þess getur það hafa fælt marga frá flokknum, að mikil átök urðu á síðasta landsfundi flokksins við formannskjör.Það laðar ekki nýja liðsmenn að flokknum, að sjá hann klofna sí tvær jafnstórar fylkingar. Það var illa staðið að formannskjörinu.
Björgvin Guðmundsson
fyrrverandi borgarfulltrúi Alþýðuflokksins.
Félagi í hreyfingu jafnaðarmanna í 66 ár
www.gudmundsson.net
-----
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:58 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Björgvin!
Myndir þú vilja hlaupa inn í ESB í dag ef að þú værir formaður samfylkingarinnar?
Jón Þórhallsson, 21.7.2015 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.