Skammta öldruðum og öryrkjum þriðjung af kauphækkun launþega!

 

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag um kjör aldraðra og öryrkja.Þar segir hann m.a..:Í grein minni " Kjör aldraðra og öryrkja ítrekað skert"   sýndi ég fram á, að stjórnvöld hafa um langt skeið hlunnfarið eldri borgara og öryrkja.Stjórnvöld láta lífeyrisþega aldrei fá hliðstæðar kjarabætur og launþegar fá. Það er alltaf klipið af launauppbótum og verðlagsuppbótum til aldraðra og öryrkja. Stjórnvöld telja, að lífeyrisþegar hafi breitt bak! Þessi saga er nú enn einu sinni að endurtaka sig. Fjármálaràðherra boðar, að aldraðir og öryrkjar eigi að fá hækkun á lífeyri næsta ár, ekki sömu hækkun og launþegar, heldur þriðjungshækkun af launahækkun láglaunafólks! Og lífeyrisþegar eiga ekki að fá hækkun frá sama tíma og launþegar, þ.e 1.mai.Nei þeir eiga að fá hana 8 mánuðum síðar. Það er engu líkara en stjórnvöld telji, að aldraðir og öryrkjar hafi svo góð kjör, að þeim liggi ekkert á.

 

 

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband