Laugardagur, 28. apríl 2007
Jákvæð áhrif aldraðra á stjórnmálaflokkana
Framboðsfrestur vegna alþingiskosninga 12.mai rann út í gær. Allir flokkar nema baráttusamtök aldraðra og öryrkja bjóða fram í öllum kjördæmum. Baráttusamtökin bjóða aðeins fram í Norðurlandi eystra. Samtökin urðu of sein að skila framboði í öðru Reykjavíkurkjördæminu.
Á síðasta hausti birti Gallup skoðanakönnun, sem sýndi, að hugsanlegt framboð eldri borgara mundi fá 25% atkvæða. Þetta var gífurlegt fylgi og gaf til kynna,að aldraðir gætu fengið mikið fylgi, ef staðið væri rétt að málum. Strax og þessi skoðanakönnun birtist tóku allir stjórnmálaflokkarnir við sér. Þeir áttuðu sig á því, að mikil óánægja var meðal aldraðra vegna slæmra kjara og ófremdarástands í hjúkrunarmálum aldraðra. Umræður strax á síðasta hausti um hugsanlegt framboð eldri borgara ítti enn frekar við stjórnmálaflokkunum. Þeir lýstu því allir yfir, að þeir vildu bæta kjör aldraðra verulega. Samfylkingin gekk lengst í því efni og setti fram róttæka stefnu um aðgerðir í málefnum aldraðra. Segja má, að skoðanakönnun Gallups um hugsanlegt framboðs aldraðra og umræður um slíkt framboð hafi haft jákvæð áhrif á alla flokkana. Hins vegar tókst öldruðum að klúðra framboðsmálunum. Klofningur í þeirra röðum og umræður um tvö framboð spillti mjög mikið fyrir framboði og nánast eyðilagði það.Vandræðagangur við undirbúning framboðs eldri borgara gerði einnig illt verra. Ef aldraðir hefði staðið rétt að málum hefðu þeir leikið sér að því að fá að minnsta kosti 10 % atkvæða í kosningum. En miðað við stöðu mála nú fá þeir í mesta lagi 2-3 %.
Það er synd hvað eldri borgarar gátu klúðrað málum vegna slæmra vinnubragða en þeir höfðu jákvæð áhrif á alla stjórnmálaflokkana og það er gott.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég tek undir það sem þú segir og er sammála að segja má, að skoðanakönnun Gallups um hugsanlegt framboðs aldraðra og umræður um slíkt framboð hafi haft jákvæð áhrif á alla flokkana til að bæta kjör aldraðra. Kv. BB
Björgvin Björgvinsson, 28.4.2007 kl. 12:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.