Þriðjudagur, 11. ágúst 2015
Öryrkja vantar 160 þúsund á mánuði
Öryrkjabandalag Íslands fékk Ólaf Ísleifsson hagfræðing til þess að athuga hvað öryrki,sem ekkert eða lítið hefur annað en tekjur frá almannatryggingum þyrfti til þess að geta lifað eðlilegu og hefðbundnu lífi. Niðurstaðan var sú,að það vantaði 160 þúsund krónur á mánuði til þess að ná dæmigerðu neysluviðmiði velferðarráðuneytisins.10-12 þúsund króna hækkun á ráðstöfunartekjum,sem ríkisstjórnin er að bjóða frá næstu áramótum segir því lítið til þess að brúa það mikla bil. Staðan er svipuð hjá öldruðum .Kjaranefnd FEB hefur reiknað út að það vanti 129 þúsund á mánuði hjá einhleypum eldri borgurum.Öryrkjabandalagið segir,að stjórnvöld haldi öryrkjum við fátækramörk.Og hið sama á við eldri borgara. Þeim eldri borgurum,,sem aðeins hafa tekjur frá TR er haldið við fátækramörk. það er til skammar.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.