Miðvikudagur, 12. ágúst 2015
Neikvæð afstaða stjórnvalda til aldraðra og öryrkja
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag um neikvæða afstöðu stjórnvalda til aldraðra og öryrkja.Hér leita stjórnvöld allra leiða til þess að komast hjá að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja þó kaup launþega sé að hækka. Alþingi kemur saman 8.september og verður að skerast í leikinn. Stjórnmálaflokkarnir fá þá tækifæri.Skoðanakannanur leiða í ljós,að kjósendur eru orðnir þreyttir á lélegri frammistöðu flokkkanna. Nú geta þeir bætt ráð sitt.Stjórnarflokkarnir geta efnt kosningaloforðin við aldraða,sem enn er eftir að uppfylla eins og kjaragliðnunina frá 2009.Það þarf að hækka lífeyri um 20% til þess að efna það loforð.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.