Gróf mannréttindabrot á öldruðum og öryrkjum

 Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag: Gróf mannréttindabrot á öldruðum og öryrkjum. Þar segir svo:

 

                 Enn einu sinni er verið að brjóta mannréttindi á öldruðum og öryrkjum.Árin 2009 og 2010 var lífeyrir frystur.Láglaunafólk fékk á því tímabili  16% kauphækkun en aldraðir og öryrkjar  fengu ekki eina krónu eftir 1.jan.2009.1.mai sl fékk láglaunafólk 30 þúsund króna kauphækkun á mánuði en aldraðir og öryrkjar ekki eina krónu. Og lífeyrisþegum var hreinlega tilkynnt, að þeir fengju enga hækkun í 8 mánuði! Þetta er mismunun og gróft mannréttindabrot.

Lífeyrisþegum er neitað um hliðstæðar kjarabætur og launþegar eru að fá.Nær allir launþegar landsins eru að fá verulegar kjarabætur en

lífeyrisþegar eru sniðgengnir.Rîkisstjórnin neitar
 eftirlaunamönnum um sömu hækkun.Ég tel þetta brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og brot á 76.greininni en samkvæmt henni er réttur aldraðra og öryrkja til þess að taka eðlilegan þátt í samfélaginu varinn.


     Sama framkoma við aldraða og áður

 

Þetta er sama framkoma við aldraða og öryrkja og átti sér stað í tíð fyrri ríkisstjórnar, þegar laun embættismanna,dómara og alþingismanna voru færð til baka og síðan leiðrétt à ný.Lífeyrir eldri borgara og öryrkja var einnig skertur, færður til baka.Við leiðréttingu launa hátekjumannanna var leiðréttingin ekki látin duga heldur

fengu hátekjumennirnir kauphækkunina greidda til baka, aftur í tímann! En aldraðir og öryrkjar voru hlunnfarnir.Þeir fengu enga leiðréttingu á sama tíma.Samt höfðu þeir mátt sæta kjaraskerðingu eins og hátekjumenn.Við  leiðréttingu á launum  voru  þeir skildir eftir. Það voru brotin mannréttindi á þeim að mínu mati.

Þegar kjör aldraðra og öryrkja voru skert 2009 voru  einnig framin mannréttindabrot.Í mannréttindasáttmálum, sem Ísland er aðili að, segir, að ef færa eigi kjör aldraðra og öryrkja til baka vegna efnahagserfiðleika , eigi fyrst að kanna hvort unnt sé að fara aðra leið. Það var ekki gert 2009. Þess vegna var  þá um mannréttindabrot að ræða.


Lífeyrir aldraðra og öryrkja ítrekað frystur


Stjórnvöld hafa hvað eftir annað leikið þann leik að taka 69.grein laga um almannatryggingar úr sambandi en þar segir, að við breytingu á lífeyri aldraðra og öryrkja eigi að taka mið af launaþróun en lífeyrir aldrei að hækka minna  en vísitala neysluverðs.Frá þessu hefur ítrekað verið vikið og lífeyrir aldraðra og öryrkja frystur langtímum saman á sama tíma og láglaunafólk hefur verið að fá kjarabætur.Það er  lögbrot og sennilega mannréttindabrot.Auk þess hefur hvað eftir annað verið klipið af launauppbótum til lífeyrisþega. Nærtækasta dæmið í því efni er það, að lífeyrir aldraðra og öryrkja var hækkaður um 3% í janúar 2015 , en  kaupmáttur jókst um 5,8% árið 2014.Þarna var því verið að klípa af réttmætum og eðlilegum uppbótum til lífeyrisþega.Að mínu mati er þarna verið að brjóta mannréttindi á lífeyrisþegum.En einnig er verið að brjóta lög.

 

Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar brotnir

 

Ísland er aðili að mörgum alþjóðlegum mannréttindasáttmálum.Mikilvægastur þeirra er mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna.Samkvæmt henni eiga allir rétt á félagslegu öryggi.

Og  allir í eiga rétt á lífskjörum,sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan þeirra og fjölskyldna þeirra  svo og rétt á félagslegri þjónustu, rétt til öryggis vegna veikinda, elli eða annars, sem skorti veldur.Það er ekki verið að framfylgja þessum ákvæðum á sama tíma og hópur aldraðra og öryrkja hefur ekki fyrir mat í lok hvers mánaðar.Og sá sami hópur hefur ekki efni á því að leita læknis eða leysa út lyfin sín.Það er til skammar, að  slík fátækt skuli eiga sér stað á Íslandi. Þessi fátækt er blettur á íslensku þjóðinni og þann blett verður að afmá.

 

 

 Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband