Fara aldraðir í mál við ríkið?

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag: Fara aldraðir í mál við ríkið?Þar segir svo:

Aldraðir eru orðnir langþreyttir á aðgerðarleysi stjórnvalda í kjaramálum þeirra. Og þá sjaldan eitthvað er gert í lífeyrismálum þeirra er það skorið við nögl og  þannig undirstrikað rækilega ,að stjórnvöld líti á aldraða sem annars flokks borgara, sem megi sitja á hakanum! Af þessu, sökum hafa eldri borgarar hugleitt nýjar leiðir í kjarabaráttunni. Hugsanleg málsókn gegn ríkinu hefur verið rædd í því sambandi.

Verið að brjóta stjórnarskrána?

Í 76.grein stjórnarskrárinnar segir,að ríkið eigi að veita öldruðum aðstoð, ef þörf er á. Þetta ákvæði hefur verið túlkað svo í réttarsölunum, að  þeir,sem þurfi aðstoð ríkisins til framfærslu, eigi að fá aðstoð, sem geri þeim  kleift að taka eðlilegan þátt í samfélaginu.Heyrnarlausa stúlkan,Snædís Hjartardóttir, sem ekki fékk tilskylda túlkaþjónustu,  gat ekki tekið eðlilegan þátt í samfélaginu vegna þess að hún fékk ekki þessa þjónustu.Menntamálaráðherra sagðist ekki hafa peninga en sú mótbára  dugði ekki í réttarsalnum.Stjórnarskráin er ofan fjárlögum. Stúlkan hafði stjórnarskrárvarinn rétt til túlkaþjónustu og þess vegna vann hún málið. Ég hef trú á því, að það sé einnig talinn stjórnarskrárvarinn réttur eldri borgara að fá nægilegan lífeyri frá almannatryggingum til þess  að geta tekið eðlilegan þátt í samfélaginu.Þeir eldri borgarar, sem hafa einungis lífeyri frá TR, geta það ekki í dag. Lífeyrir almannatrygginga dugar ekki fyrir brýnustu útgjöldum þeirra.
Sumir eldri borgarar,sem hafa minnst frá almannatryggingum,hafa ekki fyrir mat síðustu daga mánaðarins.Slík meðferð a eldri borgurum stenst ekki fyrir lögum og stjórnarskrá.
Það er verið að brjóta mannréttindi á þessum eldri borgurum.

192 þúsund á mánuði!

Einhleypur ellilífeyrisþegi,sem einungis hefur tekjur frá TR, hefur ekki nema 192 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Það lifir enginn mannsæmandi lífi af svo lágri upphæð í dag miðað við mikinn húsnæðiskostnað. Það er ekki aðeins,að þeir geti ekki veitt sér neitt heldur hafa þeir ekki fyrir brýnustu nauðsynjum.Þeir,sem eru í þessari  stöðu, geta ekki  tekið eðlilegan þátt í samfélaginu.Það er kominn tími til,að við breytum þessu. Við þurfum að veita þessum þegnum okkar viðunandi lífskjör.Sjáum til þess strax
 
 
Björgvin Guðmundsson






No virus found in this message.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband