Aldraðir hafa skilað vinnuframlagi sínu

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag: Aldraðir hafa skilað  vinnuframlag sínu. Þar segir svo:

 

Svo virðist sem Alþingi  ætli ekki að taka rögg á sig og afgreiða kjaramál aldraðra og öryrkja með myndarskap.Ég hafði greinilega of mikla trú á alþingi.Ég vonaði og trúði því, að alþingi gæti tekið í taumana og leiðrétt þau mistök, sem ríkisstjórn nú og áður hafði gert í málefnum lífeyrisþega.En það var of mikil tilætlunarsemi.Meirihlutinn á Alþingi ræður öllu þar og í raun er það ríkisstjórnin sem stjórnar alþingi.
Bjarni gaf tóninn
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur gefið tóninn í lífeyrismálum aldraðra og öryrkja. Hann sagði,að ekki væri rétt að hafa lífeyri eins háan og lágmarkslaun launþega. Ef svo væri misstu lífeyrisþegar hvatann til þess að fara út á vinnumarkaðinn.Samfylkingin vildi bótavæða samfélagið! Flokkurinn vildi hafa alla á bótum! Hvað er maðurinn að tala um? Vill hann reka aldraða,sjötuga og áttræða og þaðan af eldri út á vinnumarkaðinn? Hér er verið að tala um  þá eldri borgara,sem búnir eru að  ljúka sinni starfsævi.Það er verið að tala um þá, sem byggt
hafa upp þetta þjóðfélag.
Atvinnulífið neikvætt öryrkjum
Fjármálaráðherra mun sjálfsagt svara því til, að hann eigi fyrst og fremst við öryrkja. En hann talaði um  lífeyrisþega í  einu lagi,öryrkja,aldraða og fleiri.Það er heldur ekki unnt að reka alla öryrkja út á vinnumarkaðinn. Þeir, sem misst hafa heilsuna í slysum eða veikindum, eru ekki fullgildir á vinnumarkaðnum. Og hlutastörf öryrkja  hafa ekki til þessa átt upp á pallborðið hjá atvinnulífinu.Atvinnurekendur  hafa ekki verið  jákvæðir gagnvart öryrkjum.Það þarf mikið að breytast hjá atvinnulífinu eigi öryrkjar að fá hlutastörf hjá íslenskum fyrirtækjum og vera velkomnir til starfa þar.
Stjórnvöld áhugalaus um hag aldraðra!
það er eitthvað mikið að hjá íslenskum stjórnmálamönnum, að þeir skuli flestir vera mjög áhugalausir um málefni lífeyrisþega.Það hefur um langt skeið verið þannig, að stjórnvöld,hver sem þau eru, reyna að halda kjörum aldraðra og öryrkja niðri.Það hefur verið níðst á lífeyrisþegum.Lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur iðulega  verið frystur enda þótt laun hafi verið hækkuð. Þó er lífeyrir aldraðra ekkert annað en laun þeirra, eftirlaun.Og þvi  er ekki rétt að tala um bætur til þeirra og fráleitt að tala um bótavæðingu, þegar aldraðir eiga í hlut.
Lífeyrisþegar fái 300 þúsund á mánuði
Verkalýðshreyfingin og samfélagið allt taldi svo komið, að  nauðsynlegt væri að lyfta lágmarkslaunum verkafólks myndarlega upp, þar eð ekki væri unnt að lifa á þessum lágu launum. Nákvæmlega sama máli gegnir um lægsta lífeyri TR og kjör þeirra eldri borgara,sem verst eru staddir. Þetta hljóta stjórnmálamenn að vita.Þetta hlýtur fjármálaráðherra að vita.
Lífeyrir aldraðra hjá TR fari í 300 þúsund á mánuði
Af þessum ástæðum verður að hækka lífeyri almannatrygginga í 300 þúsund krónur á mánuði,samhliða hækkun lágmarkslauna.Og það verður að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja strax um 14,5% eins og lágmarkslaun og gildistíminn á að vera 1.mai sl. Það verður enginn afsláttur gefinn af þessari kröfu aldraðra.Þetta er sanngirnis-og réttlætis krafa,sem verður að ná fram að ganga.
Í
Í síðustu grein minni var sagt,að kjaragliðnun í ár væri álíka og á krepputímanum.En standa átti,að hún væri svipuð 2013-2015 og á krepputímanum.
Björgvin Guðmundsson
Formaður   kjaranefndar
                          Félags eldri borgara
Í Reykjavík og nágrenni
www.gudmundsson.net

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband