Miðvikudagur, 28. október 2015
Stjórnvöld hafa brugðist öldruðum og öryrkjum
Alþingi kom saman 8.september.Nokkru áður skrifaði ég grein í
Fréttablaðið, þar sem ég skoraði á alþingi að taka kjaramál aldraðra
fyrir strax á fyrstu dögum þingsins og samþykkja að láta aldraða fá
jafnmikla hækkun á lífeyri sínum frá TR og þeir lægst launuðu höfðu fengið á launum sinum frá 1.mai.Lífeyrir ætti síðan að hækka í 300 þúsund krónur á þremur árum eins og launin.Ég skrifaði forseta þingsins bréf og fór fram á það sama.
Í áskorun minni á alþingi sagði ma.:
Ég skora á alþingi að hækka strax lífeyri aldraðra og öryrkja jafnmikið og lágmarkslaun hækkuðu 1.mai sl eða um 31 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin gildi frá 1.mai þannig að lífeyrisþegar fái 5 mánaða hækkun með septemberhækkun.Alþingi samþykki þessa hækkun strax og það kemur saman 8.september.
Vænti þverpólitískrar sáttar
Ekkert gerðist.Enda þótt fyrir lægi,að hópur eldri borgara gætí ekki
framfleytt sér á hinum lága lífeyri, sem TR skammtar honum, varð engin
þverpóitísk sátt um aðgerðir.Og enda þótt vitað væri, að þeir,sem verst
eru staddir meðal eldri borgara, ættu ekki fyrir mat síðustu daga
mánaðarins, varð ekkert samkonulag um ráðstafanir fyrir eldri borgara.Forseti
þingsins, Einar K.Guðfinnsson,hafði það eins og ráðherrarnir, þegar þeir fá
bréf frá eldri borgurum.Hann stakk bréfinu ofan í skúffu! Hvað vilja eldri
borgarar upp á dekk? Halda þeir, að alþingi sé fyrir almenning?
Frumvarp frá Samfylkingunni
En örlítið ljós leyndist í myrkrinu: Samfylkingin flutti frumvarp til laga
um, að lífeyrir aldraðra hækkaði í 300 þúsund krónur á mánuði á 3 árum eins
og launin og að hækkun lífeyris gilti frá 1.mai.Ekki blæs þó byrlega fyrir frumvarpinu: Fjármálaráðherra hefur gefið tóninn og sagt, að lífeyrir eigi ekki að vera eins hár og lágmarkslaun! Vonandi tekur alþingi samt sjálfstæða ákvörðun og samþykkir sanngjarna og réttláta kröfu eldri borgara: 14.5% hækkun lífeyris frà 1.mai 2015 og hækkun í 300 þúsund á mánuði á 3 árum.
Þetta er lágmark.Ríkisstjórnin hefur ekki viljað samþykkja kjarakröfur eldri borgara. En samþykkir þingið samt frv. Samfylkingarinnar?
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.