Reynt að blekkja aldraða og öryrkja!

Undanfarið hafa ítrekað birst furðulegar fréttir í fjölmiðlum um gífurlega hækkun á greiðslum og bótum Tryggingastofnunar og meiri hækkun en á launum?Ljóst er,að tilgangur þessa áróðurs er að koma því inn hjá fólki,að lífeyrir aldraðra og öryrkja hafi hækkað Meira en laun. Hér er um eina stóra blekkingu að ræða.Í "fréttinni" er verið að fjalla um allar greiðslur Tryggingastofnunar en ekki aðeins lífeyri aldraðra og öryrkja.Það er t.d verið að fjalla um meðlagsgreiðslur,dánarbætur,foreldragreiðslur langveikra barna,mæðra-og feðralaun,endurhæfingalífeyri,félagslega aðstoð,barnalífeyri,styrki vegna reksturs bíla öryrkja,o.fl.ofl auk elli-og örorkulífeyris.Ekkert er getið um mikla fjölgun þeirra,sem njóta styrkja og lífeyris frá TR.Frétt mbl um málið fjallaði um árið 2014 en með fyrirsögn  var gefið til kynna að átt væri við yfirstandandi ár.

Hið rétta um hækkanir lífeyris er þetta: Lífeyri hefur einungis hækkað um 3% á þessu ári vegna 5,9% launahækkunar sl árs.Lágmarkslaun hækkuðu um 14,5% sl vor en lífeyrir hefur ekkert hækkað síðan. Lífeyrisþegar hafa mátt bera verðhækkanir bótalaust.

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband