Leiðrétta verður lífeyri aldraðra og öryrkja í samræmi við launahækkanir

 

Miklar launahækkanir hafa átt sér stað á þessu ári, meiri en um langt skeið.Ríkið reið á vaðið með því  að gera háa samninga  við framhaldsskólakennara og lækna.Samið var við framhaldsskólakennara um 44 % kauphækkun á 3 árum, að meðtalinni viðbótarhækkun, sem fékkst vegna  úrskurðar gerðardóms í máli BHM.Og samið var við lækna um 25-40% launahækkun á 3 árum.
Ríkið gerði hæstu samningana
Með þessum samningum ríkisins var stefnan mörkuð og í kjölfarið fylgdu margir háir samningar.Verkafólk var orðið langþreytti  á að bïða eftir kjarabótum og það var viðurkennt í þjóðfélaginu, að ekki væri unnt að lifa af lægstu launum verkamanna.1.mai sl sömdu Flóabandalagið,Starfsgreinasambandið og VR um 14.5% hækkun á lágmarkslaunum (lágmarks tekjutryggingu) strax og að launin skyldu hækka í 300 þúsund krónur á 3 árum.Það er 40% hækkun lágmarkslauna, úr 214 þúsund krónum á mánuði í 300 þúsund á mánuði.
Á eftir fylgdu fjölmargir kjarasamningar og flestir í hærri kantinum.Nú síðast sömdu sjúkraliðar,lögreglumenn og SFR við ríkið og fengu 30-32 % launahækkun á 4 árum.Lægstu laun SFR hækkuðu um 12,5% strax..Einnig var samið um að gera tilraun með styttingu vinnutíma, 36 stunda vinnuviku,án kjaraskerðingar.Athuga á hvort afköst aukast við styttingu vinnutíma
Launaþróun liggur ljós fyrir
Samkvæmt lögum á að taka mið af launþróun, þegar lífeyrir aldraðra og öryrkja er ákveðinn.Á þessu ári hefur launaþróun legið ljós fyrir og einnig hækkun lágmarkslauna.Ei að síður miðaði fjármálaráðuneytið við ÁÆTLUN um hækkun launavísitölu, þegar fjallað var um hækkun lífeyris aldraðra og öryrkja.Þessi áætlun var miklu lægri en raunhækkanir kjarasamninga 1.mai. Kjarasamningar lágu það snemma fyrir, að ekki þurfti að byggja á áætlunum.Með því að margir nýir kjarasamningar hafa bætst við síðan fjármálaráuneytið gerði tillögu um hækkun lífeyris verður að treysta því, að tillögurnar verði endurskoðaðar og lífeyrir  hækkaður til samræmis við raunverulega launaþróun ársins.Einnig tel ég koma til greina að miða við hækkun lágmarkslauna.( lágmarkstekjutryggingar).Hækkun lífeyris á  að mínu mati að gilda frá 1.mai sl samanber t.d síðustu kjarasamninga við SFR,sjúkraliða og lögreglumenn,sem gilda frá 1.mai 2015.
Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband