Fimmtudagur, 5. nóvember 2015
Verið að fremja mannréttindabrot á öldruðum og öryrkjum
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag.Þar segir svo:
Það er stöðugt verið að brjóta mannréttindi á eldri borgurum.Það er brot á
stjórnarskránni að skammta öldruðum svo nauman lífeyri, að ekki sé unnt að
framfleyta sér á honum.( Á við þá sem einungis hafa tekjur frá TR. ) Og það
er líka mannréttindabrot að halda lífeyri aldraðra óbreyttum, þegar
launafólk er að fá verulegar kauphækkanir.Þetta er gróf mismunun,sem bönnuð
er samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og samkvæmt jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar.Lífeyrir aldraðra er ígildi launa? Þetta eru laun þeirra,
sem lokið hafa ævistarfi síni .Þessi laun eiga að sjálfsögðu að hækka i takt
við önnur laun í þjóðfélaginu.
Ígildi eignaupptöku
Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni kannar nú hvort það
sé ekki brot á lögum og stjórnarskrá að skerða lífeyri aldraðra frá
almannatryggingum vegna greiðslna til þeirra úr lífeyrissjóði.Sá
eftirlaunamaður, sem hefur 50-100 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði,
sætir skerðingu TR, sem samsvarar í kringum helmingi greiðslunnar úr
lífeyrissjóði.Sá ,sem hefur 100 þúsund krónur úr lífeyrissjóði á mánuði
sætir 48 þúsund króna skerðingu og sá, sem hefur 50 þúsund krónur úr
lífeyrissjóði sætir 32 ja þúsund króna skerðingu.
Mörgum finnst þetta eins og eignaupptaka.Það er verið að refsa mönnum fyrir
að hafa greitt alla sína starfsævi í lífeyrissjóð. Sá eftirlaunamaður, sem
aldrei hefur greitt í lífeyrissjóð,sætir ekki neinni skerðingu á lífeyri
sínum frá almannatryggingum.Það verður að stöðva þessa skerðingu lífeyris
aldraðra hjá TR. Það er ekki unnt að sætta sig lengur við þetta
ranglæti.Góðar líkur eru á því að farið verði í mál við rikið til þess að fá
þessu ranglæti hnekkt.
Brotið á þeim sem fara á hjúkrunarheimili
En mannréttindabrotin gegn öldruðum eru fleiri. Þegar ellilífeyrisþegar
fara á hjúkrunarheimili vegna heilsubrests er lífeyrir þeirra frá
almannatryggingum gerður upptækur!.Þetta er því gert án leyfis viðkomandi
eldri borgara. Lífeyririnn frá almannatryggingum rennur til greiðslu
kostnaðar við dvölina á hjúkrunarheimilinu. Og síðan er ellilífeyrisþeganum
skammtaður vasapeningur, rúmar 50 þúsund krónur á mánuði. Þetta fyrirkomulag
tíðkast ekki á hinum. Norðurlöndunum. Þar halda ellilífeyrisþegar sínum
lífeyri frá almannatryggingum og greiða sîðan sjálfir af honum það, sem þeir
eiga að greiða til hjúkrunarheimilis. Þannig halda þeir reisn sinni.
Fyrirkomulaginu hér þarf að breyta strax og taka upp sama fyrirkomulag og á
Norðurlöndum. Núverandi skipan er niðurlægjandi fyrir ellilífeyrisþega.
Mismunun á sjúkrahúsum og á vinnumarkaði
Rannsókn leiðir í ljós, að biðtími aldraðra eftir meðferð á sjúkrastofnunum
er lengri en þeirra ,sem yngri eru. Eldri borgarar eru látnir sæta afgangi
á sjúkrahúsunum.Það er mannréttindabrot.Og hið sama á við á
vinnumarkaðnum.Þar missa eldri borgarar vinnuna á undan þeim yngri og
öldruðum gengur illa að fá vinnu á ný. Þeir yngri ganga fyrir.Þetta er
mannréttindabrot.Mismunun er bönnuð samkvæmt alþjóðlegum
mannréttindasáttmálum og samkvæmt jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Þannig ,að það er sama hvar borið er niður: Það er allsstaðar verið að
fremja mannréttindabrot á öldruðum. En en mínu mati er grófasta
mannréttindabrotið það, að skera lífeyri aldraðra svo mikið niður,að hann
dugi ekki til framfærslu.Það er til skammar fyrir íslenskt þjóðfélag,sem
vill kalla sig velferðarþjóðfélag.
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.