Stöðva verður skerðingu lífeyris hjá TR!

Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í byrjun þessa árs var samþykkt að stöðva ætti strax skerðingu lífeyris aldraðra hjá almannatryggingum vegna greiðslna til þessara eldri borgara úr lífeyrissjóði.Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir var gert ráð fyrir,að þeir yrðu viðbót við almannatryggingar.Skerðing kom aldrei til greina.Þessi skerðing hjá almannatryggingum er mikið ranglæti og skapar mikla óánægju meðal lífeyrisþega,sem lendir fyrst og fremst á lífeyrissjóðunum sjálfum.Margir segja: Hvers vegna er ég að borga i lífeyrissjóð úr því það veldur mikilli skerðingu.Þeir,sem aldrei hafa greitt i lífeyrissjóð, sæta að sjálfsögðu engri skerðingu hjá almannatryggingum.Það verður að stöðva þessa skerðingu hjá almannnatryggingum og það verður að stöðva hana strax.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband