Hvað er til ráða fyrir aldraða og öryrkja?

Hvað er til ráða fyrir eldri borgara og öryrkja i kjaramálum?Þessir  hópar hafa stöðugt leitað til stjórnvalda um leiðréttingu á kjörum sínum en stjórnvöld hafa hundsað óskir lífeyrisþega um kjaraleiðréttingu.Erindum aldraðra og öryrkja er stungið undir stól.Landssamband eldri borgara (LEB) samþykkti sl vor kröfu um ,að lífeyrir eldri borgara ætti að hækka að lágmarki jafnmikið og lágmarkslaun verkafólks og kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík samþykkti um líkt leyti sams konar ályktun.Lágmarkslaun hækkuðu um 14,5% 1.mai og jafnframt var samið um að þau ættu að hækka i 300 þúsund á 3 árum en það er 40% hækkun.Nú er 6 1/2 mánuður frá því lágmarkslaun hækkuðu þetta mikið en lífeyrir hefur ekki hækkað um eina krónu í kjölfarið.Lífeyrir er frystur.Það eina,sem heyrist frá ríkisstjórninni er,að hún ætli að hækka lífeyri um 9,4% á næsta ári.Það á m.ö.o. að draga hækkunina í 8 mánuði og síðan á að skera hana niður miðað við hækkun lágmarkslauna. Og ekkert er minnst á hækkun næstu 3 ár.Eldri borgarar eru að missa þolinmæðina.þeir vilja einhverjar aðgerðir gegn stjórnvöldum,þar eð stjórnvöld hundsa lífeyrisþega.Kjaranefnd FEB í Reykjavík og nágrenni er að kanna hvort fara eigi i mál við ríkið vegna þess,að það skammtar lífeyri,sem dugar ekki til framfæslu fyrir þá sem minnst fá.Aðrir eldri borgarar segja,að það eina sem stjórnvöld skilji sé framboð eldri borgara.Eldri borgarar eru nú tæplega 40 þúsund.Ef sá hópur stendur saman er það gífurlegt afl.Alla vega ætla eldri borgarar og öryrkjar ekki að láta valta yfir sig lengur.

Björgvin Guðmundsson 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ísleifur Gíslason

http://www.visir.is/kjararad-haekkar-laun-thjodkjorinna-og-embaettismanna/article/2015151118587

Ísleifur Gíslason, 20.11.2015 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband