Fá slitabúin 500 milljarða afslátt?

Uppgjör slitabúa föllnu bankanna stendur nú yfir. Í sumar kynnti ríkisstjórnin 2 leiðir,sem kæmu til greina við uppgjör búanna: Stöðugleika skatt,39% af verðmæti búanna eða svokallað stöðugleikaframlag.Lögð var mikil áhersla á það við kynningu málsins að sýna hvað hvor leið gæfi. Stöðugleikaskattinum var hampað mun meira  enda gæfi hann 500 milljörðum Meira en stöðuleikaframlag.Nú hefur ríkisstjórn og Seðlabanki ákveðið að velja leið stöðugleikaframlags enda þótt það gefi 500 milljörðum minna. Slitabúin fá þá 500 milljarða afslátt frá leið stöðugleikaskatts.Ef stjórnarandstaðan hefði mælt með þeirri leið hefði verið sagt,að hún væri að ganga erinda þrotabúanna,hrægammanna. En það heyrist ekki nú. Enda hvað eru 500 milljarðar milli vina?

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband