Föstudagur, 13. nóvember 2015
Virðisaukaskattur af lyfjum verði felldur niður;
Það hefur vakið athygli,að mörg dæmi eru um það,að eldri borgarar,sem hafa lægsta lífeyrinn,hafa ekki haft efni á að leysa út lyfin sín.Þeir láta matarkaup ganga fyrir en lyf og læknishjálp mætir afgangi.Það þarf að fella niður virðisaukaskatt af lyfjum.Það yrði góð kjarabót fyrir aldraða og öryrkja,þar eð þessir hópar nota mikið af lyfjum.Virðisaukaskattur af lyfjum er sá hæsti hér í allri Evrópu.Í Bretland og Svíþjóð er enginn virðisaukaskattur á lyfjum og í Frakkkandi er hann aðeins 2,1%.Við getum alveg eins fellt niður virðisaukaskatt af lyfjum eins og Bretar og Svíar.Gerum það og gerum það strax.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.