Ráðherrar fá launahækkun afturvirkt frá 1.mars.Aldraðir og öryrkjar fá ekkert fyrr en næsta ár!

Réttlætið á Íslandi  birtist í hnotskurn í þeirri ákvörðun að hækka laun ráðherra og alþingismanna afturvirkt frá 1.mars 2015 en að aldraðir og öryrkjar fái enga hækkun á þessu ári heldur fái þeir hungurlús næsta ár.Ráðherrar fá 100 þús króna launahækkun á mánuði  frá 1.mars en lífeyrisþegar fá 20 þús króna hækkun næsta ár!Ráðherrarnir hafa greinilega verið illa haldnir.

Laun ráðherra hækka  í 1257 þúsund á mánuði,forsætsráðherra hækkar í 1391 þúsund á mánuði.Alþingismenn hækka í 712 þúsund á mánuði.Einhleypir aldraðir og öryrkja,sem einungis hafa tekjur frá TR hafa í dag 192 þúsund á mánuði,eftir skatt.Ríkið hefur ekki peninga til þess að hækka lífeyrisþega strax og afturvirkt. En það eru nógir peningar til fyrir ráðherra og alþingismenn!

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband